Urrzzzarinnn að reyna að halda áfram að blogga
22.05.2007 20:41:31 / atlirag

Nýjir ráðherrar Sjálfstæðisflokks.

Það er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að sniðganga okkar ágæta kjördæmi af ráðherra. Kristján né Arnbjörg verða ráðherrar, en Arnbjörg verður áfram formaður þingsflokks sjálfstæðis.

Sjálfstæðisflokkurinn mun hins vegar fá eftirtalin ráðuneyti og þessir eiga víst að stýra þeim:

Forsætisráðuneyti: Geir H. Haarde

Fjármálaráðuneytið: Árni Matthíesen

Menntamálaráðuneytið: Þorgerður Katrín

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti: Einar K. Guðfinnsson

Heilbrigðis og tryggingaráðuneyti: Guðlaugur Þór Þórðarson

Dómsmálaráðherra: Björn Bjarnason

 

En það er nokkuð ljóst að Geir ætlar ekki að virða það að kjósendur lýstu yfir vantrausti á Björn Bjarnason og ætlar að halda honum inni í ríkisstjórn. Ég verð samt að segja að það er sorglegt að sjá engan ráðherra úr Norðuausturkjördæminu og því mun það eflaust veikja sjálfstæðisflokkinn hér í næstu kosningum.

En það er þá ljóst að samfylkingin verður með eftirfarandi ráðuneyti:

Utanríkisráðuneytið: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Samgönguráðuneytið: Kristján Möller

Félagsmálaráðuneytið: Jóhanna Sigurðardóttir

Umhverfisráðuneytið: Þórunn Sveinbjarnardóttir

Iðnaðarráðuneytið: Össur Skarphéðinsdóttir

Viðskiptaráðuneytið: Björgvin G Sigurðsson

Það er samt gríðarlega gaman að sjá Sturlu Böðvarsson detta úr ríkisstjórn.

Hins vegar er greinilegt að Sjálfstæðisflokkurinn er að taka til sín mjög viðamikla flokka eins og heilbrigðisráðuneytið sem verður gaman að sjá hvernig það mun æxlast.

Út!


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 19:17:47 / atlirag

Ömurlegur dagur

Þetta var hrikalegur dagur í dag.  Ég vaknaði illa, með killer bakverk í mjóbakinu, mætti of seint í vinnunna og var eiginlega ekkert vaknaður.  Var úrillur og það fór allt í pirrurnar á mér.  En þetta lagaðist fljótlega eftir að ég borðaði hádegismat.  

En það stefnir í að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndi stjórn og geri það á morgun.  Ég verð að segja að ég er ekki bjartsýnn á þessa næstu stjórn en ég ætla samt ekki að ganga út frá því en segi hér með að Samfylkingunni er ekki treystandi og þar síst Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.  

Á morgun verður spilaður leikur í fótbolta sem á víst að vera hátindur tímabilsins, úrslitaleikur Meistarardeildarinnar.  Fyrir mér er þetta einhver smá leikur sem er spilaður í Grikklandi og allt of mikið veður gert úr honum.  Þar spila einhver smálið sem mig minnir að heiti Liverpool og AC-Milan.  En hvernig ætli leikurinn fari?  Mitt ágisk er það að leikurinn fari 2-2 og Liverpool vinnur í vítaspyrnukeppni.   Sjáum svo til hvort ég sé sannspár. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 22:59:42 / atlirag

Byrjaður aftur

Já ég hef ákveðið að hefjast handan við að blogga aftur. Það eru eflaust ekki margir sem líta á síðuna mína, en fyrir þá örfáu sem það gera verð ég að skrifa fyrir svo þeir fái aðeins að skygnast inn í minn flókna hugarheim.

Undanfarið hef ég verið að reyna skilja hvar ég stend í pólitíkinni! Ég hef alltaf litið á mig sem kapítalista, sem trúi á frjálsan markað og að einstaklingurinn komi okkur eins langt áfram og hægt er. Samt vil ég hafa sterkt velferðarkerfi sem allir hafa jafnan aðgang að. Samt sem áður eiga þeir sem að nýta hverja þjónustu að borga fyrir hana! Þetta er allt of flókið mál. Ætli ég sé ekki velferðarkapítalisti sem vill hugsa um umhverfi sitt?

En hvaðan koma þessar pælingar mínar? Jú, ég sat og var að keyra! Þá hugsa ég. Margar af mínum bestu hugmyndum koma þegar ég er einn í bílnum og að keyra. Þá hefur maður svo mikinn tíma til þess eins að tala við sjálfan sig.

Í bílnum í dag þegar ég keyrði úr Sauðburði í Þistilfirðinum, þá var mér hugsað til nýja aðstæðna í stjórnmálunum hér heima. Svo virðist sem okkar "demókrataflokkur" og "Rebúblikanaflokkurinn" ætli að vinna saman. Sá flokkur sem var stofnaður til að koma sjálfstæðisflokknum frá völdum, er að ganga í ríkisstjórnarsamstarf við þann illa flokk, sjálfstæðisflokkinn. Án gríns er það eflaust það versta sem gat komið upp á í mínum huga. Samfylkingin er ekkert nema hentistefnuflokkur. Ég ræddi þetta við einn samfylkingarmann og hann var sammála mér um að Samfylkingin væri hentistefnuflokkur og taldi það gott, því hann stefndi að því sem fólkið vill! En það er ekki hægt að gera öllum til geðs og stjórnmálaflokkar verða að hafa ákveðnar stefnur sem fólk getur treyst því að þeir standi fyrir. Ég verð að viðurkenna að ég hefði ekki kosið sjálfstæðisflokkinn ef ég hefði vitað að þeir ætluðu í sæng með Samfylkingunni og með því gera Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að ráðherra. Mér hryllir við hugsuninni. En tíminn mun leiða það í ljós hvort ég kýs sjálfstæðisflokkin aftur, en þar verða menn að vinna mitt traust aftur. Það er nokkuð ljóst.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 22:41:54 / atlirag

Kominn tími á nýja færslu

Sæl Öll sömul.

Það er kominn tími til að ég skrifi eitthvað hér til að létta á mínum hugsunum.  Nú er maður hættur í handboltanum og búinn með skólann og kominn í fulla vinnu sem verslunarstjóri í Nettó Akureyri.  Hvað á maður að skrifa um?  Ég ætla að halda áfram að skrifa um eitthvað í mínu nánasta umhverfi.  Sá á heimasíðu áðan félaga minn Sindra Haralds þar sem hann var að sína gríðarlega skemmtileg tilþrif, eyjarfrettir.is  Mæli með því að allir kíki á hana.

Nú lifir maður og hrærist í matvörubisnessnum, og þá hlýtur maður að verða segja eitthvað frá því.  Það var tekið viðtal við mig frá N4 og býst við því að kallinn hafi staðið sig nokkuð vel þar.  Var verið að fjalla um rjúpuna, og hvað fólk væri að velja í staðinn.  Ekki að ég hafi hugmynd um það en svona er þetta. 

Hafið þið pælt í einu?  Félagi minn benti mér á það að hann væri á móti lýðræði.  Hver er á móti lýðræði?  Af hverju er hann á móti lýðræði.  Jú því að í lýðræði þá eru atkvæði allra jöfn, það eru allir jafnir, en það er hreinlega argasti kommúnismi og ekki er hann góður í raun! 

BÍB
Atli Rag

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 23:19:17 / atlirag

Menntamálaráðherra að fara á kostum

Það er ljóst að Þorgerður Katrín Menntamálaráðherra er að fara á kostum þessa dagana.  Fyrstalagi stendur hún fyrir því að svelta Háskólann á Akureyri og hamrar enn og aftur á því að hér vilji hún ekki að fylgi við sjálfstæðisflokkinn komi upp. 
Nýjasta verk hennar núna er að hætta við samræmd stúdentspróf í núverandi mynd.  Það var ekkert hlustað á nemendur þegar þessi stúdentspróf voru ákveðin.  Nei, frekar lagt upp í kostnaðarsaman undirbúning og framkvæmd prófanna.  Það væri athyglisvert að skoða hver kostnaðurinn á bak við prófin var.  Það hefði verið hægt að nota þá peninga í HA. 
Og meðan stúdentar í HA mótmæla sér menntamálaráðherra sér ekki fært að mæta, ekki einu sinni að senda sinn fulltrúa.  Hún sniðgengur það.  Í staðinn fyrir að mæta hugsanlega sjálf og lofa úrbótum og bæta!  Það er jú nauðsynlegt.  Ef hún vill starfa áfram á því sviði sem hún er núna verður hún að gera eitthvað. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 10:16:44 / atlirag

Aigars í tveggja leikja bann!!!!!!

Af hverju?  Ég held að það hljóti að vera vegna þess að hann er útlendingur.  Ég kíkti á reglur aganefndar HSÍ og sá að ekkert þar gæti flokkast undir það sem Aigar gerði. 

9.5                 Viðurlög við brotum.

 

9.5.1.               a) 1 leikur í bann:

                                - útilokun vegna brota er stofna heilsu mótherja í hættu, (16:6,c)

-útilokun vegna grófrar óíþróttamannslegrar framkomu leikmanns eða starfsmanns,(16:6,d sbr. 16:8, 4. mgr. sbr. 17:11)

- útilokun vegna óíþróttamannslegrar hegðunar starfsmanns eftir að einn hefur fengið 2 mínútna brottvísun samkvæmt reglu 16:3d (8:4), (17:6,b)

                        b) 2 leikir í bann fyrir:

-grófa óíþróttamannslega hegðun gagnvart leikmönnum, áhorfendum, dómurum eða öðrum starfsmönnum á keppnisstað, sem leiðir til útlokunar, (16 :13 sbr skýringu við leikreglur 6 a)

-brjóti leikmaður af sér á síðustu mínútu leiks með þeim hætti að kasta sér á andstæðing, leikmann með bolta.

                                - Grófa endurtekna óíþróttamannslega framkomu, (skýrsla dómara)

                        c) 3 leikir í bann fyrir:

                                - brottvikningu, (16:9 sbr. 8:7)

                        d) 4 leikir í bann fyrir:

- ofbeldi utan vallar, fyrir, eftir og meðan á leik stendur, (16:6e,f, sbr. 8,7 og 16:8, 4 mgr.)

                        e) Tímabundið leikbann.

- brot sem falla undir gr. 9.5.4.

 

Ég held að allir í húsinu hafi séð það að Aigars sýndi ekki þessa grófa óíþróttamannslegu framkomu og hvað þá að hafa kastað sér á leikmann, þar sem hann gekk áfram með hendur uppi. 

 

Þetta er hreinlega dæmi um rasisma hjá aganefnd og dómurum HSÍ.  Það hefur lengið verið þannig að leikmenn eru ekki meðhöndlaðir eins hjá sumum dómarapörum eftir uppruna.  Á þessu verður að fara taka á. 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 09:50:32 / atlirag

Spá fyrir leiki kvöldsins

Hér kemur spá fyrir leiki kvöldsins frá tveimur af leikmönnum Þórs:

Atli Þór markmaður:
Þór Ak - Afturelding   36 - 32
KA - Víkingur/Fjölnir   33 - 28
Valur - FH                  28 - 20
Selfoss - ÍR                24 - 33
Fylkir - Fram               26 - 26


Ari Jón Línumaður:
Þór Ak - Afturelding    35 - 33
ka - Víkingur/Fjölnir     34 - 25
Valur - fh                   25 - 25
Selfoss - ír                  24 - 38
Fylkir - Fram                27 - 25


Fyrir rétt úrslit gefur 4 stig.
Ef sagt er til um réttan sigurvegara eða jafntefli gefur 2 stig.
Markatala annars liðs gefur 1 stig.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 21:16:53 / atlirag

Smá hugleyðing

Akureyri er bær sem ég er stoltur af því að búa í og langar til að gera það áfram.  Ég er einn af þeim fáu sem útskrifuðust í mínum árgangi sem ákvað að setjast hér að og fara í Háskólann á Akureyri.  Háskólinn hefur dregið að sér fjölda starfa og nemendur og sést það best í fólksfjölguninni í bænum að hann hefur þar augljós áhrif þar sem við sjáum að konum fjölgar hraðar en körlum, en það eru einmitt konur sem mennta sig lengur en karlar. 

 

En hvað annað dregur fólk í bæinn?  Störf, góður bæjarandi, góð aðstaða til íþróttaiðkunar, gott félagskerfi og þannig gæti ég lengið haldið áfram að telja upp.  En það sem skiptir fólki mestu máli er hvaða störf það getur fengið.  Ég er á þeim tímamótum núna að ég er að klára námið í bili.  Hvað ætla ég mér að gera eftir það? Spyrja mig margir núna.  Í sannleika sagt er ekki margt sem mér býðst miðað við mína menntun og öðrum sem eru að útskrifast með mér.  Helsta lausnin er að koma sér í eitthvað starf tímabundið og bíða. 

 

Eitthvað verður að gera til þess að það starf sem Háskólinn er að vinna glatist ekki strax burtu og það fólk sem flytur í bæinn hopi ekki strax burt.  Margir benda ólmir á að stóriðja sé það sem mun leysa öll vandamál Akureyrar.  Getur það verið rétt að stóriðja eins og t.d. eitt stk. álver.  Það er hins vegar ekki rétta leiðin.  Einblínum frekar á þekkingariðnaðinn, matvælaiðnaðinn og upplýsingartæknina. 

 

Hvað er til staðar á Akureyri í dag?  Hér eru stór fyrirtæki á landsvísu í matvælaiðnaði og þau gætu hæglega stækkað.  Hér eru einnig þekkingarfyrirtæki sem vinna á landsvísu og mætti efla þau verulega með hjálp Háskólans.  Efla þarf Háskólann út á vinnumarkaðinn og fá fyrirtæki í auknu mæli til þess að leita til hans eftir rannsóknum og athugunum, því innan skólans er margt af hæfileikaríku fólki. 

 

Hverju er hægt að bæta við atvinnulífið hér á Akureyri og auglýsi ég eftir hugmyndum.  Ég persónulega myndi vilja sjá Hafrannsóknarstofnun og Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins auka sína starfsemi hér á Akureyri í samvinnu með Háskólanum á Akureyri.  Ég er handviss um að ef menn leggjast á eitt og íhuga aðrar leiðir en stóriðju verða menn vísari að margt er hægt að gera.  Ég auglýsi því hér með eftir hugmyndum. 



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 09:33:57 / atlirag

Jæja, kominn tími til að ausa úr skálum biturðar!

Jæja, ég hef þagað of lengi hér.  Nú verð ég að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist og hætta þessum helvítis aumingjaskap.  En á undan öllum leiðindum verð ég að lýsa ánægju minni yfir RÚV, þótt maður þurfi að borga skatt fyrir að eiga sjónvarpið sitt til RÚV þá borgar það sig að hluta til núna þar sem þeir eru ekkert smá duglegir við að sýna yfirgengilega mikið frá EM í handbolta.  Ég hef sjaldan vanhirt námið jafn mikið og ég geri í augnablikinu, þó maður sé nú aldrei of duglegur!   En kannski sýna þeir svona mikið vegna þess að íslensku strákunum gengur svona vel.  Þó heyrir maður nú á mörgum handbolta besservisserum í dag hvað íslenskir markmenn séu lélegir!  Djöfull hlýt ég þá að vera slakur nema að ég eigi hreinlega heima þarna á þessu móti.  Afar ólíklegt verður þó að segjast.

En nóg af handboltanum, yfir í sjálfstæðisflokkinn á Akureyri.  Þar er að fara hefjast prófkjör, þar sem satt best að segja líst mér alls ekki nógu vel á blikuna.  Þar eru að reyna fyrir sér miður góðir einstaklingar, sem ég hélt að myndu aldrei einu sinni hugsa sér að starfa fyrir flokkinn.  Aðallega eru þar tveir einstaklingar sem ég myndi aldrei vilja starfa fyrir flokkinn.  Önnur þeirra hefur setið í bæjarstjórn og drullað yfir allt og alla eins og að orði mætti komast.  Hún hefur verið á móti öllu sem meirihlutinn hefur vilja gera, (ja, kannski ekki alveg öllu,)en allavega verður að segjast eins og er þá mætti halda að hún hafi skyndilega ákveðið að skipta um kannt og byrjað að nota hina löppina, eða kasta með hinni hendinni.  Það gengur bara ekki strax! 

Síðan að endingu vil ég auglýsa það og hrósa kærustunni minni fyrir að hafa komist áfram í iðjuþjálfuninni.  Þar með sannaði hún endanlega fyrir mér að hún er miklu betri námsmaður en ég því ég hefði aldrei fengið jafn háar meðaleinkunnir eins og hún fékk.  Jafnvel að lægsta einkunin hennar sé jafnhá hæstu hjá mér!  :S

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 22:54:37 / atlirag

Styttist í að jólasveinarnir komi til byggða

Nú styttist í að stekkjastaur komi til byggða.  Hann kemur nánar tiltekið aðfaranóttu mánudags, þannig að maður þarf að muna að setja skóinn út í glugga annað kvöld.  Ég hlakka svo til. 

En allavega leikur á morgun á móti eina erlenda liðinu í deildinni, nánar tiltekið frá Vestmannaeyjum.  Ég spái því að við munum vinna öruggan sigur!  Klárlega.  Hins vegar þurfum við einhvern stuðning.  Hvet alla til að mæta.  Stundvíslega kl 13:50, því leikurinn hefst kl 14:00.  Vonandi koma ekki bjánar að sunnan og dæma!

» 51 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 20:11:55 / atlirag

Ohhhhhhhhhhh

Ég var að labba áðan úti í helvítis slabbi og hálku og að sjálfsögðu datt ég á rassgatið!  Stupid Gravity!  Það gerir mér lífið leitt. 
En þegar ég datt varð mér hugsað til þess þegar ég var í ljósabekk síðast.  Það er nefnilega þannig með mig að ég held að ég sé haldinn ljósabekkjafóbíu!  Ég hef tvisvar á ævinni farið í ljós ef ég man rétt.  Ljósabekkir eru stórhættulegir.  Fólk getur brunnið í þeim, það getur náttúrulega fengið krabbamein, en verst af öllu, þá gæti glerið undir manni brotnað og maður lent á perunum.  Það er hlutur sem ég er skíthræddur við, að detta ofan á perurnar.  Meðan ég lá í bekknum var það eina sem ég hugsaði um! SHIT hvað gerist þegar glerið brotnar undan mér.  Þar að leiðandi finnst mér það mjög stressandi að fara í ljósabekk og geri það ekki. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 11:30:22 / atlirag

Hvað var málið í gær

Í gær duttum við Þórsararnir út úr bikarnum svekkjandi eftir að hafa tapað með 2 mörkum.  Hins vegar vorum við yfirleitt alltaf einu skrefi á eftir Stjörnununni en hefðum alveg getað endað sem sigurvegarar.  Kallinn kom inn á og sýndi fínan leik, varði tólf skot þarf af eitt úr víti.  Jafn mikið og Roland.  En það sem vakti furðu mína í leiknum voru dómarar leiksins, þeir Jónas og Ingvar.  Þeirra frammistaða lofaði mjög góðu fyrstu 10 mínúturnar, þá dæmdu þeir vel eins og þeim sæmir.  En eftir það held ég að þeir hafi hreinlega dottið úr sambandi og hættu að dæma þetta almennilega.  Miðað við frammistöðu þeirra hefðu þeir ekki einu sinni átt skilið að fá borgað því þetta var svo slakt.  Ekkert samræmi, stundum ekki dæmt eftir reglum og þeir leyfðu allt of mikið af leiðindabrotum og létu leikmenn komast upp með slíkt.  Þeir geta allavega hafa gengið stolltir frá velli. 
En ég ætla samt ekki að kenna þeim um tapið, við áttum það svo sannarlega, en þetta er bara svekkjandi.  Þegar svona menn koma og hreinlega skemma leikinn.  En maður á víst að gefa þeim vinnufrið! 

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 22:46:48 / atlirag

Farðu á eftirlaun! og hættu að skrifa!

Þegar ég las íþróttafréttir Morgunblaðsins þann 6. desember varð ég orðlaus. Að maður í þessari stöðu skuli taka það persónulega þegar menn undrast það hversu illa hans miðill hefur fjallað um handboltann í vetur. Vissulega er alltaf gott að fá einhverja umfjöllun, en þegar umfjöllunin er bara staðan úr leiknum, þá er það nú orðið ansi slappt af jafn sterkum og virtum fréttamiðli líkt og Morgunblaðið er, eða var. Metnaðurinn er greinilega ekki meiri en vera ber og það kemur augljóslega í ljós í þessari niðrandi grein um handboltann á Íslandi í dag. Ég vona að Sigmund geri sér grein fyrir að hann hreinlega drullaði yfir handboltamenn á Íslandi í dag (fyrirgefið orðalagið en maður verður að kalla hlutina réttum orðum). Í raun ætti Sigmund að grafa sig í holu og skammast sín. Mikið er af ótrúlegum yfirlýsingum í grein hans og ekki ætla ég að fara skjóta allt það niður, en rétt er það að deildin er ekki jafn sterk og hún var fyrir 10 árum, en þá voru ekki sömu möguleikar fyrir leikmenn að komast til útlanda. Vissulega er það miður ef leikmaður eins og Ólafur Stefánsson segi svona um íslensku deildina og hreinlega trúi ég því ekki. En maður eins og Sigmund ætti ekki að gera líkt og Frakkar og Þjóðverjar gerðu í Fyrri heimstyrjöldinni og fara í skotgrafahernað. Lélegt hjá þér Sigmund. Þú hefur glatað virðingu minni fyrir þér sem alvöru fréttamanni. Því miður.

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 20:11:11 / atlirag

Þetta er hreinlega ótrúlegt!

Íslandsbanki nældi sér í 10 mínútna ókeypis auglýsingu á stöð 1 í kvöld.  Hvernig fóru þeir að því? Jú, þeir sendu til allra námsmanna í þjónustu hjá sér brúnku klúta!  Ég fékk sendan svona klút og ég verð að segja að mér fannst þetta fyndið þegar ég fékk þetta sent.  Ég hafði bara áhyggjur af því hvort ég gæti gefið einhverjum þetta sem gæti notað þetta, annars færi hann bara í ruslið.  En nei, það var einhverjum misboðið af þessu!  Þarna væri bankinn að senda röng skilaboð!  Sá sem ekki áttaði sig á því að þetta var grín, þarf held ég virkilega að fara á sjálfstyrkingarnámskeið eða eitthvað annað slíkt!  En allavega ég horfði á kastljós og þar kom fram einhver stelpa sem greinilega var ekki búin að hugsa það til enda hvernig hún ætlaði að koma þarna fram og með hvaða rök!  Leit hálf hallærislega út! 
Þetta er þó skömminni skárra en helvítis hrægammarnir frá KB-banka sem hanga á Glerártorgi og fljúga yfir dauðum hræum!  Tala nú ekki um helvítin sem hringja alltaf í mann og taka ekki nei sem svari! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 12:21:43 / atlirag

Kominn tími til að létta af sér!

Djöfulsins próf andskoti.  Ég hata próf!  Ég vildi að ég gæti tekið þetta nám þannig að ég myndi bara gera verkefni.  En jæja, ég þarf bara að fara í fjögur próf!  Vonandi verða þetta léttustu próf sem sögur fara af! 
En nóg af því, ekki gengur nógu vel í boltanum, erum búnir að tapa síðustu tveim leikjum!  Ég hef ekkert spreytt mig þar!  kannski er þarna samband?  Neinei segi sona!  En allavega þá hef ég alveg nóg að gera og of mikið eins og venjulega.  Er aðeins að vinna í próftíðinni, bara svona rétt til að komast í jólaskapið, þar sem maður kemst ekki í jólaskap fyrr en maður er byrjaður að vinna í Nettó í ruglinu fyrir jólin. 
Flottur snjór sem er kominn á Akureyri, var að vona að þetta væri byrjunin á jólasnjónum, en svo er víst ekki, spáð hita og slabbi eftir því sem líður á vikuna.  ÖMURLEGT SLABBIÐ, næstum því jafn ömurlegt og Gísli og Hafsteinn. 
Jólin senn koma og þá verða allir glaðir, nema þeim sem er illa við jólin, en það hlýtur að vera mjög lítill minnihlutahópur. 
Fyrsta próf á morgun, hjá honum Stefáni í Fjármálum.  Fínn kennari sem hefur augljóslega mikið vit á þessu.  Mjög flott að hafa hann í staðinn fyrir endann hann Helga Bergs.  Allir sem vita hver það er vita að engin orð geta lýst honum.  En prófið á morgun og ég er eins og venjulega ekki nógu vel undirbúinn undir það, ekki frekar en hvert annað próf.  En maður nær þessu einhvernvegin hvernig svo sem það verður.  Spurning hvort hann vilji Koníak eða Vískí?

» 44 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9